óendanlega ruglaðir rassálfar....

Svensken - Íslendingurinn

09.02.2009 14:40:53 / lara

Ágætis byrjun

Lárus er komin með nýtt blogg. Slóðin á bloggið er http://laradagny.123.is

Ciao amigos!


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2008 21:20:40 / lara

Afmæli

Til hamingju með daginn Lotta mín. Þú ert the real deal beibí görl.


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 20:56:53 / Lotta

Haust!.

Það er komið haust, sem er reyndar frábært eins og er allavega!.

mmmmmmhhhhmmm, lifes goood og mig langar tilþess að blogga um eitthvað merkilegt en það tengist öllum þessum krökkum úti Svíþjóð sem ég var með í skóla. Ég er búin að tala við nokkra vini mína í dag þaðan þegar ég loksins drúllaði mér inn á msn og það eru 4 af 5 sem ég talaði við að læra eða gera eitthvað fyrir foreldrum sínum, ekki sjálfan sig. Þá eru 3 komnir í háskóla byrjaðir á nám sem á eftir að gera þeim kleift að taka við af foreldrum sínum. Ekki afþví að þeir vilja það heldur er það eina " pabbi vill það ", " það er bara þannig og hefur alltaf verið ákveðið" osfrv. Önnur má ekki halda áfram í háskóla þótt að hún vilji það, því að móðirin vill að hún eigi að vinna. HA þetta er svo fáranlegt,  að ég get ekki sagt meira um þetta ég er bara svo hneyksluð einhvernveiginn, þegar eitthvað svona gerist hjá einhverjum sem maður þekkir. 

Já, ég ætla að koma með myndir núna í staðin suprise suprise. Ég ætlaði að vera góð við Bensa um daginn og spila við hann afþví að honum leiddist svo hrikalega. Svo vildi svo til að ég vann og........ haha  
BARA PÍNU TAPSÁR!!:!:








» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2008 00:08:25 / lara

...ég þori að mæta hverju sem er

Núna er ég í tveggja daga fríi, er að skipta um vinnur og fékk martröð í fyrrinótt. Í henni voru aðalega bilaðar lyftur og miklar hæðir, semsagt smá lofthræðsludraumur. Það er alltaf erfiðara og erfiðara að vera frá sínum heittelskaða sem er að meikaða núna í hjúkrun. Hann er svo duglegur.

Jæja ég hitti hann samt í rúmlega sólarhring um helgina samt sem áður. Fékk að fljóta með Ingu og Baldri inneftir á föstudeginum og til baka á laugardaginn aftur. Okkar sérfag saman er að kúra, já það hljómar fáránlega, en mér líður aldrei eins vel undir sæng að dotta eins og þegar ég get hjúfrað mig upp að birninum mínum. Eftir smá kúr, mat og bíóferð fór Björn í vinnuna, þá hitti ég Sölku skemmtikraft og við skruppum niðrí bæ á eitt ömurlegasta djamm þannig séð, nema það að við kjöftuðum hvor aðra í kaf í kapp við tónlistina þannig að þetta var eitt af mínum skemmtilegustu kvöldum í sumar(haust?).

  
En lán mitt í óláni seinustu viku - Ég var nýbúin að fá mér litla myndavél þegar ég skrapp í bæinn með Heiðu og Sölku á Akureyrarvöku. Morgunin eftir voru þrjár portúgalskir næturgestir(Denise sjálfboðaliði og vinkonur hennar) að fara, to hit the road again, eftir gistingu hjá okkur Birni. Við vorum semsagt 5 í herberginu þessa nótt, ekki amalegt það.  En allavega var veskið mitt hvergi sjáanlegt en síminn minn var í jakkavasanum. Ég hugsaði með mér já okei, þetta var bara crappy veski og kannski ökuskírteinið mitt en fattaði síðan á sunnudagskvöldinu að mín heittelskaða silfraða og græna myndavél hefði verið í því. Til allra lukku hafði ég „bara“ gleymt því innan við einn bar á ágætum stað og fékk það ósnert til baka. Þá gat ég séð afdrif mín þetta kvöld, svona sirka allavegana og þar á meðal alveg fáránlega mynd af mér og söngvaranum úr Hjaltalín. Pffff, Láraaaaaaaa.

  

 En að öðrum mikilvægari hlutum. Nákvæmlega á þessum degi fyrir tuttugu árum síðan fæddist stúlkan með með englakrullurnar, Sigríður Harpa. Til lukku með daginn sæta, nú máttu allt. Nema verða forseti.

 

Það er nú samt ekki oft sem að afmæliskveðjur fá að fljóta með, en víst að ég var að þessu á annað borð þá var nú bara sjálfsagt að skella með einni kveðju til dúllunnar.
Annars er bara allt í góðum gír, au revoir!

Lára


...og sem betur fer og sem betur fer
þá fann ég þig hér...


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.08.2008 04:06:25 / lara

Litli refur

Shit september er að koma. Ég veit að þessi verður ekki ánægður með haustrigningarnar..



En ég er sátt með berin í móunum og kertaljós á kvöldin... smá luuuuv mynd líka.



Jamm og jæja....

kveðja, Lárus.

ps. Snæbbí ég fann ekki myndina... kannski er hún horfin fyrir fullt og allt! :O NEEEEiiiiiii.... ég prufa að leita aftur seinna.

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 14:27:20 / lara

Quanto costa?

">

Jæja, þá er að koma með smá update frá ferðinni okkar Björns!

   Við fórum semsagt með skiptiflugi til Mílanó kl. 1 aðfaranótt sunnudags 10. ágúst. Þegar við lentum var Björn búinn að vaka í 2 sólarhringa útaf vinnunni sinni og ég í einn þannig að við vorum frekar þreytt og fengum okkur smá siestu áður en við skoðuðum lífið í bænum.


Móðursystir Björns tók á móti okkur og við vorum hjá henni allan tímann fyrir utan 2 nætur sem við vorum á ströndinni við Cinque Terra. Hún er alveg hreint ótrúleg, stjanaði alveg hrikalega við okkur og borgaði alveg hreint alltof mikið fyrir okkur og stakk svo af til Íslands meðan við vorum á ströndinni þannig að við vorum útaf fyrir okkur í íbúðinni hennar meðan við vorum í Mílanó. Mhmm very nice.

Það var mjög heitt og oftast 29 stiga hiti en það komu um 2 gráir dagar, þá var 18 stiga hiti. Það var allt í lagi því það var enginn vindur. Einn gráa daginn vorum við á einni verslunargötu í Mílanó og þá kom þessi hellirigning og spruttu upp allt í einu allstaðar innflytjendur að selja regnhlífar, hentugt en spes.

">

Á ströndinni var maður nú ekki eins mikil "gyðja" eins og maður var búinn að plana, að liggja bara og sleikja sólina og grillast í klessu. Oneiii við vorum svo útbitin, sérstaklega ég af bölvuðu moskító flugunum að manni fannst nú ekkert gaman að vera hálf ber í bikiníi. Haha, ekki eitt krúttlegt bit á kálfanum, heldur mörg á sama stað á kálfunum, ristinni, lærunum, RASSinum, handleggjunum, bakinu og brjóstunum. Þessar flugur eru helvíti kræfar í borginni en þær bitu ekki eins mikið á ströndinni. Úff og maður var farinn að halda að spreyið sem maður notaði væri bara að laða þær meira að. En það var allt í lagi, gleymdist eftir smá stund og Björn Ingi náði að draga mig með í sjóinn. Þetta var nefnilega að mestu steinaströnd með smá öldum sem ég er ekkert rosalega hrifinn af en þegar ég fór útí varð þetta bara mjöög skemmtilegt. . . .
" />

Hótelstjórinn var fyndinn gamall kall með stóra bumbu, herbergið var krúttlegt með helmingi stærri svölum og síðan gaf hann okkur hvítvín hússins þegar við fórum. Það eru fimm lítil þorp við þessa strönd og við fórum og skoðuðum þau líka og gengum síðan ástarstíginn eða Via del Amore, sem er 1 km á milli tveggja þorpa. Fórum að kvöldi til í tunglskini og smá upplýstum stíg, úlala. haha...
" />

Þegar við vorum í borginni tókum við því rólega og röltum útum allt ásamt þvi að hjóla. Það var mjög þægilegt að hjóla því að þessi tími sem við vorum þarna er mesti ferðamannatími Ítala þannig að það voru ekki margir í bænum. Síðan var auðvitað verslað aðeins .. og borðaðar pizzur og pasta og kinder súkkulaði.. sem er reyndar ekkert ítalskt en það er svo mikið af því allstaðar annarstaðar en á Íslandi!


Við fórum að lokum í dagsferð til Feneyja sem var skemmtileg upplifun. Ótrúlega mikið af fólki og flott hús. Vorum að spá í að fara í ferð með gondóla um vatnið en það kostaði okkur meira en lestarferðina fram og til baka þannig að við tókum frekar "taxabátinn" sem var ótrúlega fyndið. Troðfullur bátur af fólki, fannst eins og það væri að flytja okkur á milli landarmæra í frelsið ef þið fattið hvað ég meina.. Sáum ótrúlega mikið af svona grímum og búningum eins og í Casanova og sem Sigrún, Heiða og co. keyptu í París. Viðbjóðslega flott fannst mér. Síðan var torgið við dómkirkjuna bara ótrúlega flott og all heila klabbið þar. Ég lét Björn loka augunum og leiddi hann inná það þar sem allar þessar byggingar blöstu við, mjög fallegur staður.
" />

Humm humm, ég man nú ekki allt en set vonandi inn myndir bráðlega. Bæti kannski einhverju við seinna.

Chiao, Lára!


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.07.2008 02:41:41 / lara

Símamyndir.

Sælinú!
Mér leiðist og ekkert annað í stöðunni en að blogga. (Eða ekki blogga. . . ) Hérna eru "gamlar" myndir síðan í fyrra: 

Þessar áttu afmæli í gær, þannig að það er vel við hæfi að byrja á þeim. Tekið á PallaSjalla.
   
-
Sigrún mín og Bella fóru líka ásamt Katatarínunni minni
 
-
Arnór dinglaði sér uppí tré í Munkanum

Og Erna þreif herbergið sitt

-
Síðan var partý hjá Thomasi
  
-
Ýla var á íþróttavellinum með Kol

-
Stimpill inn á ball eða eitthvað hjá Sniglunum


Árið 2008

Núna í vor var Björn að æfa sig að hoppa uppí tröppurnar heima í Hamragerði. Plummerinn að gera sig sko

-
Sýnishorn af blómunum sem ég fékk á afmælinu

-
Svona kúrðu kisustrákarnir hjá mér þegar ég var að passa þá. Búgí og Eðli.

-
Það var viðbjóðslega gaman á LungA
Barði
  



Lónið á Seyðisfirði um ca. 6 leitið um morguninn og góðu hlýju skórnir sem amma hans Baldurs átti.
 

....

Ég tel niður dagana þar til við Björn Ingi leggjum land undir fót. Tvær vikur í að við munum sjúga í okkur sól, menningu, pizzur, rauðvín og fleira í Mílanó og nágrenni. Það verður svo ljúft, ég fæ alltof lítið að sjá framan í krúttið mitt.

 

Endum þetta á nokkrum myndum frá LungA sem Harpa mín tók:











Bæjó spæjó! ... eða arrivederci !


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 00:19:57 / lara

Stúdentar, arfi, gras, sumar...hvítabirnir og áfengi.

Komin tími á eitt blogg, ef ekki bara myndablogg.

Ég sá þessa fínu mynd á síðunni hennar Lísu og ætla að taka mér það bessaleyfi að birta hana hér: 



Mér fannst þessi dagur alveg æðislegur og gaman að eyða honum með bæði fjölskyldu minni og Björns. Við skelltum okkur í myndatöku, ég og Björn, systkinin og öll fjölskyldan.



Svo fengum við fallegar og góðar gjafir líka :) 



Og vinur Björns frá Þýskalandi, hann Max fagnaði með okkur.



Jæja, hef ekkert að segja svo sem. Björninn kominn og farinn, varð árinu eldri. Til hamingju með það Björn minn. Harpa væntanleg á norðurlandið ... Snúður er samur við sig og nóg að gera í vinnunni.

Au revoir.

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 18:03:14 / lara

Kópaskerssápa



Hello.
Is there anybody in there?
Just nod if you can hear me.
Is there anyone home?

Come on, now.
I hear youre feeling down.
Well I can ease your pain,
Get you on your feet again.

Relax.
I need some information first.
Just the basic facts:
Can you show me where it hurts?

There is no pain, you are receding.
A distant ships smoke on the horizon.
You are only coming through in waves.
Your lips move but I cant hear what youre sayin.
When I was a child I had a fever.
My hands felt just like two balloons.
Now I got that feeling once again.
I cant explain, you would not understand.
This is not how I am.
I have become comfortably numb.

Ok.
Just a little pinprick. [ping]
Therell be no more --aaaaaahhhhh!
But you may feel a little sick.

Can you stand up?
I do believe its working. good.
Thatll keep you going for the show.
Come on its time to go.

There is no pain, you are receding.
A distant ships smoke on the horizon.
You are only coming through in waves.
Your lips move but I cant hear what youre sayin.
When I was a child I caught a fleeting glimpse,
Out of the corner of my eye.
I turned to look but it was gone.
I cannot put my finger on it now.
The child is grown, the dream is gone.
I have become comfortably numb.


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 18:44:05 / lara

Ef ég væri í kvikmynd, tatamm!

Þetta var á síðunni hennar Silju og mér fannst þetta svo fyndið að ég varð að prufa.

Ok þetta fer þannig fram að ég fer inní iTunes(Windows Media Player) og set á shuffle. Síðan skrifa ég bara lagið sem kemur

Opening credits: Rosalita –Bruce Springsteen

Waking up: Frá gleymdu vori - Sprengjuhöllin

First day at school: What Goes Around Comes Around – Justin Timerlake

Falling in love: What Is And What Should Never Be – Led Zeppelin

Fight song: Jolene – Dolly Parton

Breaking up: Can´t Help Fallin In Love – UB40

Prom: Tiny Dancer – Elton John

Getting back together: Here I Am – Lay Low

Wedding: Ziggy Stardust – David Bowie

Birth of child:  The Invisible Man - Queen

Final battle: Promiscuous – Nelly Furtado ft. Timbaland

Death scene: Our Space – The Cardigans

Funeral song: Badlands – Bruce Springsteen

End credits: Black Velveteen – Lenny Cravitz


Hah, skondið og Bruce kemur tvisvar við sögu. Góð skemmtun fyrir iðjðuleysingja sem eru búnir í prófum!

Knús í klessu
Lára
pen('./other/articleimages.php?a=5409&i=0','','width=450,height=645,left=225,top=175');void(0);"> Svona var minn bekkur á Dimissio. Við vorum Pink Ladys og T-birds, ógeðslega flott ;) Ég er lengst til hægri!


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 23:36:16 / lara

munnræpa

Það er kominn maí. Gleðilegan maí! Það er klárlega besti mánuðurinn. ..eða hvað?

Það er svo margt til þess að gleðjast yfir ... :)

Ég gekk upp á Ystu-Víkur fell/fjall/hnjúk? í dag með 4.bekk. Það var magnað, geðveikt erfitt upp en klikkað gaman niður, að stökkva niður í snjónum og hlaupa þannig að maður gat valla stoppað sig.

Það er mikið að gera í skólanum, eins og alltaf þegar annirnar fara að klárast.

Ég er komin með vinnu heima á skerinu í sumar!

Æji ég veit ekki hvað ég er að babbla hérna, bara eitthvað ég ég ég.. en ég hlýt nú að mega skrifa svona nánast það sem mér sýnist, þetta er jú síðan okkar Lottu.

Mér finnst svo skrýtið að allir séu að fara útskrifast, gamli bekkurinn, allvega margir. Snæfríður, Harpa, Haraldur, Gústi, Reynir og ég. Svo Lottan okkar, sem tekur þetta í nefið eins og sannur Svíi. Svo er einn önn enn í hana Salbjörgu! Gaman, en ég veit ekki hvort einhver af þessum ætli strax í háskóla, allavega ekki svo ég viti.

Smá munnræpa.

Kv. Lár


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 13:43:18 / lara

Shaken´ all over

Núna síðustu daga hef ég fundið nokkrar tegundir af lykt sem ég finn ekki á hverjum degi. Önnur finnst mér nánast unaðsleg en hin ekki eins góð, en gefur manni von um að sumarið sé að koma.
Þessi vonda er af "mygluðu", blautu grasi sem er að sjá sólina aftur eftir að hafa legið undir snjónum og lyktin af blautri mold. Hún er ekkert sérstaklega góð en snjórinn er þá allavega að fara og allt verður grænt innan skamms!
Svo er það fjörulyktin. Mmmm hvað ég elska hana mikið, það er svo gott að sitja á steini út í fjöru og finna angann af þaranum og sjónum allt í kring! Það er líka miklu skemmtilegra að vera í fjörunni á vorin og sumrin ;)

Ég tók líka útiveru-skammtinn út um helgina sem uppbót fyrir seinustu viku. Bölvuðu streptokokkarnir komu í annað sinn í vetur og ég lá bara heima með kisann hans Björns meðan góða veðrið lék lausum hala í seinustu viku.. það var rosa gott að fara heim um helgina á skerið og éta góðan mömmumat!
Annars fór ég til Frankfurt með góðum hóp ferðafélaga á vegum skólans fyrstu helgina í apríl. Mér fannst það gaman. Smökkuðum eplavínið þeirra, sem mér fannst frekar súrt og bragðast eins og bjór með eplabragði? Svo vorum við bara ekta túristar með cameruna og þrífótinn útum allt að mynda borgina, dýragarðurinn var skemmtilegur en górillurnar voru kannski með of gróft "show" fyrir minn smekk. Haha. 

Það eru mörg háhýsi í Frankfurt og mér fannst endurbyggði gamli hlutinn flottur og dómkirkjan, svo var kósý að labba aðeins meðfram ánni Main. Toppurinn fannst mér samt næturlífið.. það var svo gaman að vera bara íslendingar að djamma eins og fávitar þarna og hittum við einhverja ríka Norðmenn og Austurríkismenn en við vorum nú góðar í að stinga bara alltaf af...
Bara smá blogg afþví að ég ætti að vera að læra... alltaf þannig.

Bæjó, spæjó og munið að vera góð við hvert annað :haha:
Lárus von gárus

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.04.2008 21:10:29 / Lotta

Sunnudagssæla..

:!::lol:lalala....

dömurnar fyrst og SVÍNIN svo hö hö hö:klikk:

Helgin og undanfarnar víkur eru bara búnar að vera mjööög nice....:!:

Svo í dag drúllaði ég mér loksins í dag í mínu ferskasta eftir 3ja tíma svefn til að gera eitthvað sem ég hef ekki gert í svona 5 ár, keppa á gobbídígobb.:d það gékk bara vel fannst mér, þótt að ég hafi verið að keppa á móti öllu körlum sem eru búnir að vera að ríða út í allan vetur og komst náttla ekkert í útslít :haha:  það verður öðruvísi í sumar þegar maður verður á fullu í þessu öllu :haha:

Og það var svo yndislega gott veður og gott að vera á baki þarna útfrá í dag, maður fær svona örlítla von um að það verði einhvertíman sumar aftur á ný og maður getur farið að vakna við birtu og þegar fuglarnir eru að synga :lol:

jæja, hérna eru nokkrar myndir frá því í dag .... haha























» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 18:39:45 / lara

Spenna...


Þá er komið að því. Á morgun förum við suður, 4. A og B í ferðamálafræði. Á fimmtudagsmorgun mætum við kl. 05:00  í Leifsstöð og fáum að opna pakkann þar sem kemur í ljós með hverjum við erum í hóp og til hvaða borgar við förum.
Það er ekki hægt að neita því að manni hlakki svoltið til! Við erum búin að gera heimildarritgerðir/bæklinga um 27 borgir í Frakklandi, Þýskalandi, Austurríki og Sviss og flytjum síðan munnlega kynningu í fyrramálið um okkar borg á því máli sem þar er talað. Síðan munum við bara fara til 7 borga í hópum og gera myndband um hana.... dudduduruuu

Bara gefa smá update;) Annars er bara gott að frétta og páskafríið var gott, skemmtilegt afmæli síðustu helgi og svona...

Auf Wiedersehen!
Tschüss!
Au revoir!
Salut!


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 12:18:11 / lara

if you knew my story word for word..

Þirðjudagar...
Þá hitti ég oftast Mentor krakkann minn, það er fínt að spjalla við hana Rósu og dandalast eitthvað með henni. Við ætlum einmitt að fara og sjá Underdog seinni partinn, planið er að fara líka með Oddnýju og Mentor krakkanum hennar.

Þá er gott að eiga einn frábæran að sem annað hvort breytist í einkabílstjóra eða lánar manni bílinn. :d

Þá er böggandi að vakna og fara í skólann til þess að komast að því að kennarinn er lasinn og maður hefði getað sofið til eitt, þar til næsti tími byrjar.

Þá er samt fínt að vakna og fara í myndlist og láta kennarann hlægja að okkur og undrast yfir stjörfu þreyttu augunum okkar. Hún er svo mikið krútt!

Þá er gott að vakna og sjá uppáhalds manneskjuna sína liggja við hliðina á sér og geta knúsað smá meira áður en maður fer á fætur.

Á þriðjudögum er ágætt að fara í íþróttir og djöflast aðeins eða fara í göngutúr með A- og B bekkingum.

Þá er fínt að hitta stelpurnar og blaðra úr okkur allt vit eða bara sitja eða liggja eins og pönnukökur og þegja en vera samt nánast alltaf að hugsa nákvæmlega það sama!

Þá er gott að kúra með Bjinga og horfa á Grey´s eða bara fylgjast með honum vera ofur-hyper :haha:

Jájá þetta er svoltið væmið og svona, en bara í tilefni þess að í dag og eiginlega í gær er liðið eitt ár síðan ég kynntist honum Bjinga mínum. Við fórum einmitt í bíó og eitthvað svona gaman, eða á morgun er reyndar ár síðan það var, whatever ! Þú ert æði, my bjingaling og færð mörg stig fyrir að þola my mooooodswings!:lol:



Svo er reyndar annað mál, ohhhh ég get ekki ákveðið mig hvort ég eigi að vinna hérna á Akureyri í sumar eða á sweet sweet Kópasker! ... pffff. Langar mest að vera heima held ég en samt er einhver efi. Eini tíminn til þess að vera eitthvað á skerinu er nefnilega á sumrin, þá eru allavega meiri líkur á því að eitthvað sé í gangi og svona. . . 
Já svo er annað, við Lotta og Harpa erum búnar að ákveða að fara bara til Tælands í haust og sjá svo hvernig verður (þá til þess að ferðast og skoða;)), hvort við förum til Kína eða hvað. Ííííí ég hlakka svo til! Svo er innan við 100 dagar í útskrift... ahhh. En úff hvað það er erfitt að þurfa verða "fullorðinn".. haha. 


Ok er farin að bulla loads ´n loads, just full of crap! ihhhhhhhhh...
Kv. Lár.
xoxo

...Oh crystal ball, crystal ball
Save us all, tell me life is beautiful...

» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagsetning
30. júlí 2010
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 52042
Rassálfarnir
Tvær úr tungunum sem nenna eiginlega aldrei að blogga. Rætur þeirra liggja í Öxarfirði-Kópaskeri þar sem lífið snýst um blóm og fiðrildi. a.k.a. Lotta Englund og Lára Dagný
Bráðnauðsynlegt